Breyting á lögum er varða viðbótarlífeyrissparnað  
Alþingi samþykkti að breyta tekjuskattslögum á þann veg að heimild til frádráttar iðgjalda í viðbótarlífeyrissparnað frá tekjuskattsstofni verði 2% í stað 4% næstu þrjú ár, þ.e. frá byrjun janúar 2012 til ársloka 2014. Lagasetningin kallar ekki á að breyta þurfi núgildandi samningum um viðbótarlífeyrissparnað, heldur ber launagreiðanda að tryggja að frjálst framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldastofni. Launagreiðendur verða því að annast það verk að lækka sparnað launþegans niður í 2% af launum.
Nánar